Mitt svæði

Hér getur þú sótt um og séð stöðu þína.

 

 

Spurt og svarað

Spurt og svarað

Hér getur þú sent fyrirspurnir og fengið svör við almennum spurningum.

Afborganir > Gjalddagar > Lánaflokkar

Lánaflokkar í endurgreiðslu

G-lán

  • Veitt frá árinu 2005
  • Verðtryggð og 1% vextir
  • Endurgreiðslur hefjast 2 árum eftir lánslok*
  • Endurgreiðslur standa yfir þar til skuld er uppgreidd eða lánþegi er fallinn frá 

R-lán**

  • Veitt árin 1992 til 2005
  • Verðtryggð og 1% vextir
  • Endurgreiðslur hefjast 2 árum eftir lánslok*
  • Endurgreiðslur standa yfir þar til skuld er uppgreidd eða lánþegi er fallinn frá  

S-lán

  • Veitt árin 1982 til 1992
  • Verðtryggð
  • Endurgreiðslur hófust 3 árum eftir námslok
  • Endurgreiðslur standa yfir þar til skuld er uppgreidd eða lánþegi er fallinn frá, þó ekki lengur en 40 ár 

V-lán

  • Veitt árin 1976 til 1982
  • Verðtryggð
  • Endurgreiðslur hófust 3 árum eftir námslok
  • Endurgreiðslur standa yfir þar til skuld er uppgreidd eða lánþegi er fallinn frá, þó ekki lengur en 20 ár

* Lánslok teljast þegar námsmaður hættir að fá lán, nema hann sýni fram á áframhaldandi lánshæft nám á næsta skólaári þar á eftir.

** Á árinu 2005 gafst lánþegum með R-lán kostur á að skuldbreyta láni sínu yfir í G-lán.

- Heimild er í lögum nr.21/1992 að vextir á R- og G-lánum séu allt að 3%.

 

Sjá dagsetningar og upphæðir afborgana undir Gjalddagar - Dagsetingar og fjárhæðir

Markaðskjaralán

Lán sem veitt voru á markaðskjörum vegna skólagjalda erlendis árin 1992-2005 lúta öðrum skilmálum og eru ekki sýnd hér.