Mitt svæði

Hér getur þú sótt um og séð stöðu þína.

 

 

Spurt og svarað

Spurt og svarað

Hér getur þú sent fyrirspurnir og fengið svör við almennum spurningum.

Afborganir > Gjalddagar > Tekjuupplýsingar

Tekjuupplýsingar til LÍN

Almennt

Sjóðurinn aflar  upplýsinga um tekjur lánþega hjá skattstjórum á Íslandi. Ef skattstjóri hefur um mitt ár áætlað tekjur á lánþega ber sjóðnum að nota áætlunina við útreikning tekjutengdrar afborgunar. Lánþega ber jafnframt að standa skil á þessari greiðslu, þó að hann telji hana ekki taka mið af réttum tekjum. Hann getur á hinn bóginn sótt um endurútreikning í allt að 60 daga eftir gjalddaga og fengið afborguninni breytt þegar nauðsynleg gögn hafa borist sjóðnum.

Tekjustofn

Tekjutengd afborgun er reiknuð út frá útsvarsstofni greiðanda árið á undan endurgreiðsluári.  Tekjutengd afborgun G-lána er reiknuð út frá útsvarsstofni og fjármagnstekjum greiðanda.  Með útsvarsstofni er átt við launatekjur, en einnig ýmsar aðrar tekjur s.s. lífeyrisgreiðslur og tryggingabætur, sbr. lög um tekju- og eignarskatt. Utan stofnsins eru á hinn bóginn móttekin barnsmeðlög, húsaleigubætur og tekjur sem ráðstafað er til lífeyrissjóða í formi iðgjalda. Með fjármagnstekjum er fyrst og fremst átt við vexti, arð, leigutekjur og söluhagnað. Sérstök athygli er vakin á því að fjármagnstekjur skiptast jafnt á milli hjóna og sambúðaraðila.

Tekjur erlendis

Ef lánþegi er búsettur erlendis og ekki skattskyldur á Íslandi, af öllum tekjum sínum og eignum, er honum gefinn kostur á að skila inn staðfestingu á tekjum frá viðkomandi skattyfirvöldum. Hafi slík staðfesting ekki borist þegar tekjutengd afborgun er ákvörðuð í byrjun ágúst ár hvert, eru tekjur áætlaðar á lánþega og viðbótargreiðslan reiknuð samkvæmt henni. Lánþega ber að standa skil á þessari greiðslu. Í allt að 60 daga eftir gjalddaga getur hann sótt um endurútreikning og skilað síðan staðfestum upplýsingum um tekjur sínar erlendis frá viðeigandi skattyfirvöldum. Hér að neðan má sjá hvaða vottorð og upplýsingar þarf að senda sjóðnum frá nokkrum löndum, til staðfestingar á tekjum.

 

Land

 

Heiti vottorðs

Bandaríkin Form 1040 og útfyllt fylgiskjöl, ásamt launamiðum ef hjón telja fram sameiginlega.
Danmörk Årsopgørelse.
England Tax return. P60 end of the year certificate
Frakkland Impôt sur le Revenue.
Noregur Utskrift av ligningen
Svíþjóð Besked Slutlig skatt enligt ____ års taxering.
Þýskaland Bescheid für ______ über Einkommensteuer.