Innheimta og vanskil
G-, R-, S- og V-lán
G-, R-, S- og V-lánaflokkar eru hin venjulegu námslán. Ef afborgun er ekki greidd fyrir eða á eindaga, leggst viðbótarkostnaður á skuldina. Dráttarvextir eru reiknaðir frá gjalddaga og gjald er lagt á fyrir innheimtuviðvörun samkvæmt heimild í reglugerð. Komi til milliinnheimtu og lögmannsinnheimtu hækkar enn kostnaður. Sjóðurinn hvetur því lánþega til að standa í skilum.
Eindagi reglubundinna afborgana er að jafnaði þriðja virka dag eftir gjalddaga. Séu ekki gerð skil er ítrekun með viðvörun um milliinnheimtu send lánþega um 25 dögum eftir gjalddaga og til greiðanda og ábyrgðarmanna um 45 dögum eftir gjalddaga. Séu enn ekki gerð skil fer krafan til milliinnheimtu 60 dögum eftir eindaga kröfu og leggur milliinnheimtufyrirtæki á gjald samkvæmt heimildum í reglugerð. Sé krafa í milliinnheimtu skulu greiðendur snúa sér til milliinnheimtufyrirtækisins vegna greiðslu. Reynist innheimta enn árangurslaus fer krafan áfram til lögmannsinnheimtu.
Sé hins vegar afborgun í greiðsludreifingu hjá LÍN er innheimta með eftirfarandi hætti: Áminning er send í tölvupósti til greiðenda eftir eindaga ef um ógreidda dreifikröfu er að ræða. Ef um tvær ógreiddar dreifikröfur eru að ræða er send bréfleg ítrekun til greiðenda og ábyrgðarmanns. Þegar ógreiddar dreifikröfur eru orðnar þrjár talsins eða ef krafa/kröfur eru ógreiddar að greiðsludreifingartímabili (4 eða 6 mánuðir eftir atvikum) loknu er send innheimtuviðvörum til greiðanda og ábyrgðarmanns. Reynist skuldin ógreidd að gefnum fresti liðnum er greiðlsudreifingarsamkomulag fellt niður og skuldin fer til lögmannsinnheimtu.
Séu skuld í lögmannsinnheimtu skulu greiðendur snúa sér beint án milligöngu LÍN til viðkomandi lögmannsstofu vegna greiðslu. Ef krafa á hendur lánþega er óuppgerð í innheimtu hjá lögmönnum þegar ný afborgun kemur á gjalddaga fer nýja krafan beint til lögmanna og gefst greiðendum kostur á að gera upp vanskil sín gagnvart LÍN í heild hjá lögmönnum án milligöngu LÍN.
Önnur skuldabréf
Skuldabréf af eftirtöldum gerðum eru innheimt af Landsbankanum f.h. LÍN:
- Lán veitt á markaðskjörum fyrir skólagjöldum erlendis árin 1992-2005
- Vanskil námslána sem greiðandi og innheimtulögmannsstofa hafa samið um að gera upp með skuldabréfi.
- Skuldabréf vegna ofgreiddra námslána.
Beri fruminnheimta Landsbankans ekki árangur fer krafan til milliinnheimtu hjá milliinnheimtufyrirtæki og að lokum til lögmannsinnheimtu verði ekki árangur af milliinnheimtunni.





