Mitt svæði

Hér getur þú sótt um og séð stöðu þína.

 

 

Spurt og svarað

Spurt og svarað

Hér getur þú sent fyrirspurnir og fengið svör við almennum spurningum.

Námslán > Umsóknir/eyðublöð > Leiðbeiningar vegna grunnumsóknar

Leiðbeiningar vegna grunnumsóknar

Allar breytingar, eftir að umsókn hefur verið skilað, skal tilkynna LÍN skriflega á þar til gerðum eyðublöðum.

Leggja þarf inn nýja umsókn ef skipt er um skóla og/eða námsgrein.

Lánasjóðurinn sækir upplýsingar um fjölskylduhagi og heimilisfang á Íslandi í þjóðskrá. Allar breytingar á heimilisfangi á að tilkynna Hagstofu Íslands.

Húsnæði

Tilgreina þarf tegund húsnæðis sem búið er í á námstíma. Námsmenn í leiguhúsnæði á Íslandi þurfa síðar að sanna eðlilegar leigugreiðslur með því að skila til sjóðsins afriti af greiðsluseðli (RSK 2.02) til skattyfirvalda. Borgi námsmaður ekki leigu, telst hann hvorki í leigu né eigin húsnæði.

Nám sem sótt er um aðstoð til

Skrá þarf heiti skóla, námsstaðar og námsgreinar. Auk þess þarf að tilgreina væntanlega námsgráðu. Ef lengra nám er áformað skal skrá heiti á næstu námsgráðu.

Ef nám erlendis

Námsmenn erlendis verða að hafa umboðsmann á Íslandi. Lánasjóðurinn sækir upplýsingar um heimilisfang umboðsmanns í þjóðskrá. Allur bréfapóstur frá Lánasjóðnum er sendur á aðsetur eins og það er skráð í þjóðskrá. Allar breytingar á heimilisföngum verða því að eiga sér stað í gegnum Hagstofu Íslands.

Lánstími, upphæð og lán v/ maka

Hægt er að sækja um aðstoð fyrir allt árið eða hluta úr ári. Sækja má um hámarksaðstoð skv. reglum LÍN eða takmarkað lán að ákveðinni upphæð. Í ákveðnum tilvikum getur námsmaður sótt um makalán og verður þá að áætla tekjur maka á árinu 2005.

Meðlagslán

Námsmaður getur sótt sérstaklega um viðbótarlán vegna meðlags sem hann greiðir svo sannanlegt sé. Ef sótt er um meðlagslán þarf að tilgreina kennitölur barna sem meðlag er greitt vegna. Lán vegna meðlags er greitt beint til Innheimtustofnunar sveitarfélaga. Ef meðlagsskylt barn er ekki með íslenska kennitölu eða búsett utan Norðurlandanna þarf að koma gögnum þar að lútandi til Lánasjóðsins.

Áætlaðar tekjur

Breytingar á áætluninni ber að tilkynna til sjóðsins með bréfi, símbréfi eða tölvupósti. Upplýsingarnar verða síðar m.a. bornar saman við upplýsingar úr skattframtali 2006. Ef upplýsingar reynast rangar getur það valdið námsmanni verulegu óhagræði. Samkvæmt ákvæðum greinar 5.2.3. í úthlutunarreglum LÍN er heimilt að gjaldfella lán veitt á námsárinu ef tekjur reynast verulega vanáætlaðar.

Bankareikningur sem leggja á námslán inn á

Tilgreina þarf þann bankareikning sem leggja á lánið inn á. Reikningurinn verður að vera í íslenskum banka og á nafni námsmanns. Allar greiðslur LÍN til námsmanns verða lagðar inn á reikninginn.

Ábyrgðarmaður

Áður en kemur að útborgun láns þarf að tryggja lánið með undirskrift a.m.k. eins ábyrgðarmanns sem lýsir því yfir að hann taki að sér sjálfskuldarábyrgð á endurgreiðslu lánsins. Á umsókn skal tilgreina nafn og kennitölu ábyrgðarmanns. Hann þarf síðan að staðfesta ábyrgðina, þegar skuldabréfið verður sent út til áritunar. Í stað þess að tilnefna ábyrgðarmann getur námsmaður samið viðskiptabanka sinn um bankaábyrgð. Fyrir ábyrgðina þarfa þá að greiða sérstaklega, 2,5% af lánsfjárhæð og 350 kr. afgreiðslugjald. Kostnaðurinn kemur til frádráttar við útborgun námsláns.

Ábyrgð

Sjálfskuldarábyrgð skal ætíð bundin við ákveðna fjárhæð sem breytist í samræmi við vísitölu neysluverðs. Tilgreina þarf þá upphæð sem ábyrgðarmaður er tilbúinn að ábyrgjast. Hægt er að velja um hámarksábyrgð eða lægri tiltekna upphæð sem ábyrgðarmaður ákveður.

Félagsaðild

Hægt er að sækja um félagsaðild að BÍSN, SÍNE eða INSÍ á umsókninni. SÍNE er Samband íslenskra námsmanna erlendis, BÍSN er Bandalag íslenskra námsmanna og INSÍ er Iðnnemasamband Íslands. Þessi félög eiga fulltrúa í stjórn LÍN, og félagsaðild fylgir blað samtakanna auk ýmiskonar þjónustu sem þau veita félagsmönnum sínum og umboðsmönnum þeirra. Félagsgjöld í SÍNE eru 2.500 krónur á ári en hjá BÍSN og INSÍ 1.800 krónur.

Undirskrift

Námsmaður þarf að staðfesta umsókn með undirskrift.