Mitt svæði

Hér getur þú sótt um og séð stöðu þína.

 

 

Spurt og svarað

Spurt og svarað

Hér getur þú sent fyrirspurnir og fengið svör við almennum spurningum.

Námslán > Úthlutunarreglur > Breytingar frá 10. sept.

Eftirfarandi greinum í úthlutunareglum LÍN 2009-2010 var breytt frá og með 10. september 2009: 

3.1. Grunnframfærsla. 

3.1.1. Grunnframfærsla á Íslandi.

Öll aðstoð til framfærslu á námstíma skólaárið 2009–2010 miðast við grunnframfærslu á Íslandi, sem skilgreind er af sjóðnum. Sú fjárhæð er kr. 120.720.  (Sjá nánar framfærslutöflu) eða 18.108 kr. fyrir hverja ECTS-einingu sem námsmaður lýkur.

 

3.3. Tekjur.

3.3.1. Tekjur.

Tekjur námsmanns og maka á árinu 2009 eins og þær eru skilgreindar af stjórn sjóðsins, geta haft áhrif á veitta aðstoð á skólaárinu 2009-2010. Stundi námsmaður nám erlendis, eru tekjur hans yfirfærðar í mynt námslands miðað við gengi hinn 1. júní 2009.

35% tekna námsmanns á árinu 2009 umfram 750.000 kr. koma til frádráttar á námsláni. Í þeim tilfellum þegar veitt eru makalán koma 35% sameiginlegra tekna hjóna/einstaklinga í staðfestri samvist/einstaklinga í skráðri sambúð á árinu 2009 umfram 1.125.000 kr. til frádráttar.  Frádrætti vegna tekna skal að jafnaði dreift jafnt á 60 ECTS-einingar.

 

3.3.2. Komið úr námshléi.

Heimilt er að fimmfalda frítekjumark námsmanns sem kemur úr námshléi sbr. gr. 3.3.1, enda liggi fyrir að hann hafi ekki verið í námi sl. 6 mánuði. LÍN áskilur sér rétt til að óska eftir gögnum því til staðfestingar ef þess er talin þörf.

 

4.3. Lán til einstæðs foreldris.

Framfærsla er grunnframfærsla sem hækkar um 8.142 kr. fyrir hvert barn fyrir hverja ECTS-einingu sem lokið er vegna náms á Íslandi og um sambærilegt hlutfall af grunnframfærslu sé nám stundað í útlöndum, sbr. gr. 3.1. Lánað er fyrir framfærslu á námstíma en tekjur koma til frádráttar, sbr. gr. 3.3.1. Námsmanni er ekki veitt lán sem einstæðu foreldri nema hann fari með forsjá barns og barnið eigi lögheimili hjá honum eða búi sannanlega hjá honum á námstíma, t.d. þegar um sameiginlegt forræði er að ræða.

 

4.5. Lán til námsmanns í hjúskap, staðfestri samvist eða skráðri sambúð. 

Framfærsla námsmanns í hjúskap, staðfestri samvist eða skráðri sambúð er grunnframfærsla sem hækkar fyrir hvert barn námsmanns eða maka ef barnið á lögheimili hjá honum eða býr sannanlega hjá honum á námstíma. Fyrir hvert barn hækkar framfærslan um 4.507 kr. fyrir hverja ECTS-einingu sem lokið er sé nám stundað á Íslandi og um sambærilegt hlutfall af grunnframfærslu sé nám stundað í útlöndum, sbr. gr. 3.1. Lánað er fyrir framfærslu á námstíma en tekjur koma til frádráttar sbr. gr. 3.3.1. Lán vegna maka er aðeins veitt í vissum undantekningartilvikum samanber gr. 4.6.

Séu báðir aðilar í lánshæfu námi ákvarðast lán til hvors um sig sérstaklega.