Mitt svæði

Hér getur þú sótt um og séð stöðu þína.

 

 

Spurt og svarað

Spurt og svarað

Hér getur þú sent fyrirspurnir og fengið svör við almennum spurningum.

Námslán > Úthlutunarreglur > Reglur 2009 - 2010

Reglur 2009 - 2010


Kafli I - Lánshæft nám
Kafli II - Námsframvinda
Kafli III - Framfærsla og tekjur
Kafli IV - Lánaflokkar
Kafli V - Umsóknir og útborgun
Kafli VI - Samnorrænar reglur
Kafli VII - Lánskjör
Kafli VIII - Fylgiskjöl
Úthlutunarreglur 2009-2010

 

 Skilgreiningar á helstu hugtökum

Aðstoðarár: Réttur námsmanna til námslána er tiltekinn sem fjöldi aðstoðarára. Hafi námsmaður fengið lán fyrir 31-60 ECTS-einingum telst hann hafa fengið lán fyrir eitt aðstoðarár. Lán fyrir 30 ECTS-einingum eða færri telst lán fyrir hálft aðstoðarár.

Aðstoðartímabil: Það tímabil á námsárinu sem námsmaður þiggur lán fyrir.

ECTS-eining: ECTS (European Credit Transfer and Accumulation System) er samræmdur mælikværði á nám í aðildarríkjum Evrópusambandsins og annarra þátttakenda í Bologna-ferlinu. 60 ECTS-einingar jafngilda fullu námsári.

Fjórðungur/önn: Ef skólaári er skipt í þrjú tímabil, þ.e. haust- vetrar- og vorönn er miðað við að námsmaður í fullu námi hafi stundað nám í þrjá fjórðunga (annir) á skólaárinu.

Fullt nám: Námsmaður telst ljúka fullu námi ljúki hann 60 ECTS-einingum á skólaárinu.

Grunnframfærsla: Sú fjárhæð sem sýnir lánsþörf námsmanns í leiguhúsnæði á námstíma eins og hún er skilgreind af stjórn sjóðsins.

Lokun skuldabréfs: Skuldabréfi er lokað við lok þess tímabils sem námsmaður þiggur námslán, þ.e. við lok síðasta aðstoðartímabilsins. Vextir reiknast á lánið frá og með lokun skuldabréfs og almennt er miðað við að endurgreiðslur þess hefjist tveimur árum síðar.

Misseri: Ef skólaári er skipt upp í tvö jafnlöng tímabil að jafnaði, haust- og vormisseri er miðað við að námsmaður í fullu námi hafi stundað nám í tvö misseri. Sumarmisseri telst vera þriðja misserið.

Námsferill: Námsbraut sem lýkur með tiltekinni prófgráðu. Nýr námsferill hefst skipti námsmaður um skóla, námsgrein eða prófgráðu.

Sérnám: Starfstengt nám sem ekki er kennt á háskólastigi. Nám á framhaldsskólastigi til stúdentsprófs telst ekki til sérnáms.

Sjálfskuldarábyrgð: Skuldarábyrgð sem er þannig háttað að ábyrgðarmanni er skylt að greiða skuldina á gjalddaga þótt kröfuhafi hafi engar tilraunir gert til að fá hana greidda hjá aðalskuldara.

Skólaár: Er 9 mánuðir og hefst að hausti og lýkur að vori. Ef námsmaður stundar nám á sumarönn tilheyrir sú önn undangengnu skólaári.

Svigrúm: Möguleg lágmarksnámsframvinda og heildarlánstími í tilteknu námi. Er meðal annars átt við fjölda eininga sem heimilt er að lána fyrir og fjölda mögulegra aðstoðarára.

Undirbúningsnám: Nám til undirbúnings námi á háskólastigi.

Útreikningsmynt: Námslán eru reiknuð í mynt þess lands þar sem námsmaður stundar nám sitt. Í ákveðnum tilvikum er útreikningsmynt önnur en mynt námslands.