Mitt svæði

Hér getur þú sótt um og séð stöðu þína.

 

 

Spurt og svarað

Spurt og svarað

Hér getur þú sent fyrirspurnir og fengið svör við almennum spurningum.

Námslán > Úthlutunarreglur > Reglur 2009 - 2010 > Framfærsla og tekjur
     
Kafli I - Lánshæft nám Kafli IV - Lánaflokkar Kafli VII - Lánskjör
Kafli II - Námsframvinda Kafli V - Umsóknir og útborgun Kafli VIII - Fylgiskjöl
Kafli III - Framfærsla og tekjur Kafli VI - Samnorrænar reglur  
     

III. Framfærsla og tekjur

3.1. Grunnframfærsla.

 

3.1.1. Grunnframfærsla á Íslandi.

Öll aðstoð til framfærslu á námstíma skólaárið 2009–2010 miðast við grunnframfærslu á Íslandi, sem skilgreind er af sjóðnum. Sú fjárhæð er kr. 100.600.  (Sjá nánar fylgiskjal I) eða 15.090 kr. fyrir hverja ECTS-einingu sem námsmaður lýkur.

 

3.1.2. Grunnframfærsla í útlöndum.

Grunnframfærsla í útlöndum á námstíma skólaárið 2009–2010, sem getur verið mismunandi eftir löndum og borgum, er ákveðið hlutfall af grunnframfærslu á Íslandi. Framfærsla námsmanna erlendis miðast við landið/borgina þar sem skólinn er staðsettur. (Sjá nánar fylgiskjal II).

 

3.1.3. Framfærsla skiptinema.

Skiptinemar geta óskað eftir að framfærsla þeirra taki mið af framfærslu í því landi þar sem skiptinámið er stundað. Útreikningur miðast þá við gengi 1. júní 2009.

3.2. Framfærsla námsmanns.

Auk búsetu hafa þær aðstæður sem tilgreindar eru undir gr. 4.2.– 4.6. áhrif á framfærslu námsmanns en framfærsla fjarnámsnema miðast þó alltaf við landið þar sem skólinn er staðsettur. Framfærsla námsmanns hækkar vegna barna sem eru 18 ára eða yngri og á framfæri hans. Lán samkvæmt gr. 4.4. og gr. 4.7. – 4.12. eru til viðbótar lánum til
framfærslu námsmanns. Tekjur geta því komið til frádráttar þessum lánum samkvæmt ákvæðum gr. 3.3.1.

 

3.3. Tekjur.

3.3.1. Tekjur.

Tekjur námsmanns og maka á árinu 2009 eins og þær eru skilgreindar af stjórn sjóðsins, geta haft áhrif á veitta aðstoð á skólaárinu 2009-2010. Stundi námsmaður nám erlendis, eru tekjur hans yfirfærðar í mynt námslands miðað við gengi hinn 1. júní 2009.

10% tekna námsmanns á árinu 2009 koma til frádráttar á námsláni. Í þeim tilfellum þegar veitt eru makalán koma 10% tekna maka á árinu 2009 líka til frádráttar.  Frádrætti vegna tekna skal að jafnaði dreift jafnt á 60 ECTS-einingar.

3.3.2. Tekjuáætlun - skattframtal.

Áður en til þess kemur að veita lán vegna náms á haustmisseri skal námsmaður gera grein fyrir áætluðum tekjum á árinu 2009.

Áður en til þess kemur að veita lán vegna náms á vormisseri skal sjóðnum berast staðfestar skattframtalsupplýsingar vegna tekna á árinu 2009.

3.3.3. Endanlegt tekjutillit.

Endanlegt tekjutillit á sér stað eftir álagningu skattyfirvalda. Séu tekjur lánþega þá áætlaðar skal sjóðurinn ákvarða honum námsaðstoð í samræmi við áætlunina. Ákvörðunin er endanleg nema lánþegi geri athugasemd við hana innan þriggja mánaða. Skal þá heimilt að endurskoða hana í samræmi við nýjar tekjuupplýsingar staðfestar af skattyfirvöldum.

3.3.4. Ófullnægjandi tekjuáætlun.

Sjóðsstjórn getur breytt ófullnægjandi tekjuáætlun.

 

3.4. Hvað telst til tekna?

3.4.1. Tekjur á árinu 2009.

Allar tekjur sem mynda skattstofn á árinu 2009 teljast til tekna við útreikning á láni samkvæmt grein 3.3.

3.4.2. Námsstyrkir.

Skattskyldir náms- og rannsóknarstyrkir og kennslulaun, t.d. „teaching assistantship“ og „utbildningsbidrag“ reiknast sem tekjur, sbr. grein 4.8.

3.4.3. Sérstakir námsstyrkir.

Styrkir sem veittir eru á vegum NORDPLUS og ERASMUS hafa engin áhrif á lán, enda sæki námsmaður ekki um viðbótarlán vegna þess kostnaðar, sem hann verður fyrir vegna námsins erlendis. 

3.4.4. Frádráttur frá tekjum.

Til frádráttar tekjum koma skólagjöld sem námsmaður fær ekki lánað fyrir skv. gr. 4.8. og föst afborgun námsláns sem til fellur og greidd er á aðstoðartímabilinu.

3.5. Upplýsingaskylda námsmanns og maka vegna tekna.

Með undirritun umsóknar veita námsmaður og maki sjóðnum heimild til að kanna skattframtöl þeirra á þeim tíma sem lán eru veitt eða endurgreiðsla lána stendur yfir. Tekjuupplýsingar skulu gefnar upp skv. beiðni sjóðsins.