Mitt svæði

Hér getur þú sótt um og séð stöðu þína.

 

 

Spurt og svarað

Spurt og svarað

Hér getur þú sent fyrirspurnir og fengið svör við almennum spurningum.

Námslán > Úthlutunarreglur > Reglur 2009 - 2010 > Lánaflokkar
     
Kafli I - Lánshæft nám Kafli IV - Lánaflokkar Kafli VII - Lánskjör
Kafli II - Námsframvinda Kafli V - Umsóknir og útborgun Kafli VIII - Fylgiskjöl
Kafli III - Framfærsla og tekjur Kafli VI - Samnorrænar reglur  
     

IV. Kafli - Lánaflokkar

4.1. Almennar forsendur.

Lán taka almennt mið af aðstæðum, fjölskyldustærð og búsetu, eins og þær eru skráðar í þjóðskrá hinn 1. september ár hvert. Ef aðstæður breytast á skólaárinu eftir 1. september er þó tekið tillit til þess við ákvörðun lána samkvæmt gr. 4.2. – 4.6 og 4.12. Tillit þetta er tvískipt og fer eftir því hvort aðstæður breytast fyrir eða eftir áramót. Þegar sótt er um lán fyrir heilt skólaár (haust og vor) er tillitið 75% af fullu tilliti til hækkunar eða lækkunar á framfærslu fyrir hverja lánshæfa einingu ef breytingin á sér stað fyrir áramót, en annars 25%. Þegar eingöngu er sótt um lán vegna náms að hausti er tillitið 50% af fullu tilliti ef breyting á aðstæðum á sér stað fyrir áramót. Þetta hlutfall gildir einnig þegar eingöngu er sótt um lán vegna náms að vori og breyting á aðstæðum, miðað við skráningu í þjóðskrá 1. janúar, á sér stað eftir áramót. Þegar sótt er um lán vegna sumarnáms (1. júní – 31. ágúst) skal tillit vegna breyttra aðstæðna útfært með sambærilegum hætti og vegna náms á almennu skólaári.

4.2. Lán til einhleypra námsmanna.

4.2.1. Námsmenn sem búa í leiguhúsnæði eða eigin húsnæði.

Framfærsla einhleyps námsmanns er grunnframfærsla en 10% tekna koma til frádráttar, sbr. gr. 3.3.1. Einhleypur námsmaður, barnlaus hjón eða sambýlisfólk, skulu sanna eðlilegar leigugreiðslur með afriti af greiðslumiða til skattyfirvalda eða staðfesta íbúðareign með vottorði frá Fasteignamati ríkisins/þinglýsingarvottorði. 

4.2.2. Námsmenn sem hvorki búa í leiguhúsnæði né eigin húsnæði.

Framfærsla námsmanns sem hvorki býr í leiguhúsnæði né eigin húsnæði er 60% af grunnframfærslu en 10% tekna koma til frádráttar, sbr. gr. 3.3.1. 

4.2.3. Námsmenn sem búa hjá efnalitlum foreldrum/foreldri.

Heimilt er að hækka framfærslu hjá námsmönnum, sem búa hjá efnalitlum foreldrum upp í 100%, ef tekjur hvors foreldris um sig eru undir viðmiðunarmörkum. Viðmiðunarmörk í þessu sambandi svara til einfaldrar framfærslu einstæðs foreldris. Framfærsla einstæðs foreldris miðast við barnafjölda á framfæri þess undir 21 árs aldri að meðtöldum námsmanni.

4.3. Lán til einstæðs foreldris.

Framfærsla er grunnframfærsla sem hækkar um 6.782 kr. fyrir hvert barn fyrir hverja ECTS-einingu sem lokið er vegna náms á Íslandi og um sambærilegt hlutfall af grunnframfærslu sé nám stundað í útlöndum, sbr. gr. 3.1. Lánað er fyrir framfærslu á námstíma en tekjur koma til frádráttar, sbr. gr. 3.3.1. Námsmanni er ekki veitt lán sem einstæðu foreldri nema hann fari með forsjá barns og barnið eigi lögheimili hjá honum eða búi sannanlega hjá honum á námstíma, t.d. þegar um sameiginlegt forræði er að ræða.

4.4. Lán vegna meðlagsgreiðslna. 

Námsmaður getur sótt sérstaklega um viðbótarlán vegna meðlags, sem hann greiðir svo sannanlegt sé. Þegar veitt er lán vegna meðlags, greiðir sjóðurinn meðlag beint til Innheimtustofnunar sveitafélaga. Lánað er vegna meðlags á námstíma, 3.150 kr. fyrir hverja ECTS-einingu sem lokið er eða jafngildi í annarri mynt miðað við gengi 1. júní 2009.

4.5. Lán til námsmanns í hjúskap, staðfestri samvist eða skráðri sambúð. 

Framfærsla námsmanns í hjúskap, staðfestri samvist eða skráðri sambúð er grunnframfærsla sem hækkar fyrir hvert barn námsmanns eða maka ef barnið á lögheimili hjá honum eða býr sannanlega hjá honum á námstíma. Fyrir hvert barn hækkar framfærslan um 3.756 kr. fyrir hverja ECTS-einingu sem lokið er sé nám stundað á Íslandi og um sambærilegt hlutfall af grunnframfærslu sé nám stundað í útlöndum, sbr. gr. 3.1. Lánað er fyrir framfærslu á námstíma en tekjur koma til frádráttar sbr. gr. 3.3.1. Lán vegna maka er aðeins veitt í vissum undantekningartilvikum samanber gr. 4.6.

Séu báðir aðilar í lánshæfu námi ákvarðast lán til hvors um sig sérstaklega.

4.6. Lán vegna maka

Eftirfarandi aðstæður geta leitt til þess að framfærsla námsmanns í hjónabandi/staðfestri samvist/skráðri sambúð hækkar um 50% af grunnframfærslu vegna maka:

a) Veikindi eða örorka maka skv. læknisvottorði.
b) Námsmaður og maki hafa langveikt eða fatlað barn á framfæri sínu og maki starfar ekki utan heimilis vegna umönnunar barnsins. Skilyrði er að barnið hafi lögheimili hjá námsmanni og maka og að læknisvottorði sé framvísað.
c) Námsmaður og maki eru búsett erlendis og hafa barn á framfæri sínu og maki er heimavinnandi.

 Ef veitt er lán vegna maka koma tekjur maka til frádráttar láninu, sbr. grein 3.1.1.

Ekki er veitt makalán ef maki er sjálfur lánþegi á námsárinu.

4.7. Lán til bóka-, tækja- og efniskaupa.

Námsmaður á rétt á viðbótarláni vegna bókakaupa. Veitt er 800 kr. lán á hverja ECTS-einingu sem lokið er sé nám stundað á Íslandi og sambærilegt hlutfall af grunnframfærslu sé nám stundað í útlöndum, sbr. gr. 3.1. 

4.8. Lán vegna skólagjalda.

Viðbótarlán vegna skólagjalda, umfram fenginn óskattskyldan styrk, eru veitt til sérnáms, almenns háskólanáms og framhaldsháskólanáms, sbr. skilgreininingu á framhaldsháskólanámi í gr. 2.3.3., í eitt misseri að loknum 20 ECTS-einingum, í tvö misseri að loknum 40 ECTS-einingum og á sumarmisseri að loknum 75 ECTS-einingum.  Ef skólaári er skipt í þrjú tímabil eru veitt skólagjaldalán fyrir einn fjórðung að loknum 20 ECTS-einingum, fyrir tvo fjórðunga að loknum 26 ECTS-einingum, fyrir þrjá fjórðunga að loknum 40 ECTS-einingum og fyrir nám á sumarönn að loknum 75 ECTS-einingum.

Hámark samanlagðra skólagjaldalána miðast við tilgreint hámark í síðasta námslandi. Áður fengin skólagjaldalán eru því ætíð dregin frá hámarki síðasta námslands þegar svigrúm til frekari skólagjaldalána er fundið. Samanlögð lán til námsmanna vegna skólagjalda á Íslandi skulu aldrei verða hærri en 3.500 þús.kr. og vegna skólagjalda erlenldis ákveðið hlutfall af þeirri upphæð, sbr. fylgiskjal II. Ef með þarf skal yfirfæra útreikningsfjárhæð (sbr. gr. 5.2.2.) eldri skólagjaldalána í mynt námslands 2009-2010 miðað við gengi 1. júní 2009. Einungis er veitt lán vegna árlegra skólagjalda umfram 45.000 kr.

Frá og með skólaárinu 2010-2011 verður sjálfsfjármögnun lánþega allt að 30% af lánshæfum skólagjöldum, að lágmarki þó 45.000 kr. Það gildir einungis um þá sem hefja nám í nýjum námsferli á skólaárinu 2010-2011, sbr. skilgreiningu á námsferli í gr. 2.1.

Skólaárið 2009-2010 skal árlegt hámark skólagjaldaláns vegna sérnáms og almenns háskólanáms vera 1/3 af samanlögðu hámarksláni skv. 2. mgr. þessarar greinar

Heimilt er að greiða út lán vegna skólagjalda fyrir eitt misseri við upphaf námstímabils til annarra námsmanna en fyrsta árs nema, fyrir annað misseri að loknum 20 ECTS-einingum og fyrir þriðja misseri að loknum 60 ECTS-einingum. Ef skólaári er skipt í þrjú tímabil er fyrirframgreiðsla heimil með sama hætti vegna annars fjórðungs að loknum 20 ECTS-einingum, vegna þriðja fjórðungs að loknum 26 ECTS-einingum og vegna sumarannar að loknum 60 ECTS-einingum.

  

4.9. Lán vegna ýmissa atvika og röskunar á stöðu og högum námsmanns. 

Heimilt er að veita námsmanni aukalán sem samsvarar framfærslu fyrir allt að 7 ECTS-einingar að teknu tilliti til fjölskyldustærðar verði ófyrirsjáanleg röskun á stöðu og högum námsmanns og reglur þessar ná ekki til hennar að öðru leyti. Á þetta t.d. við þegar  námsmanni verður vegna alvarlegra veikinda, örorku sinnar, framfærslu barna sinna eða maka eða af öðrum ástæðum illmögulegt að stunda nám sitt að fullnýttri lánsheimild. Hafa skal hliðsjón af þeim bótum sem námsmaður fær samkvæmt gildandi tryggingalöggjöf.

Heimilt er skv. þessari grein að veita námsmanni sérstakt lán vegna aukaferðar ef hann þarf skyndilega að fara heim vegna alvarlegra veikinda eða andláts í nánustu fjölskyldu. Nauðsynlegt er að leggja fram nákvæmar upplýsingar um ástæður ferðar ásamt viðeigandi læknisvottorði eða dánarvottorði. Til nánustu fjölskyldu skulu teljast foreldrar námsmanns og maka, afar og ömmur námsmanns og maka, systkini námsmanns og maka og börn þeirra. Ef slíkt aukalán er veitt greiðist það út með framfærsluláni sbr. gr. 5.2.1.

 

 

4.10. Lán vegna sjúkratrygginga. 

Námsmenn sem greiða háar sjúkratryggingar geta sótt um að þeim kostnaði sé mætt. Við mat á hæfilegum kostnaði vegna sjúkratrygginga er höfð hliðsjón af upplýsingum frá íslensku tryggingafélögunum. Ef veitt er lán vegna sjúkratrygginga er það einungis fyrir þeim hluta sem er umfram 5% af grunnframfærslu að teknu tilliti til fjölskyldustærðar og búsetu. Heimilt er að veita aukalán vegna sjúkrakostnaðar erlendis sem námsmaður hefur að hluta til fengið endurgreiddan hjá Tryggingastofnun ríkisins. Við afgreiðslu slíkrar umsóknar skal tekið tillit til þess hvort námsmaður hafi keypt eðlilegar sjúkratryggingar. Heimilt er að veita lán til greiðslu hæfilegs kostnaðar vegna mæðraskoðunar og ungbarnaeftirlits erlendis ef ljóst er að hvorki tryggingaraðili námsmannsins né viðkomandi sveitarfélag á Íslandi taki þátt í greiðslu kostnaðar. Einnig er heimilt á námstíma að veita lán til greiðslu ferðakostnaðar ef barnshafandi námsmaður eða maki námsmanns erlendis kýs, vegna óhóflegs kostnaðar erlendis, að fæða barn á Íslandi. Óheimilt er að taka tillit til sjúkrakostnaðar sem Tryggingastofnun ríkisins hefur synjað að greiða.

4.11. Vaxtastyrkur.

Við útborgun lána fyrir framfærslu- og bókakostnaði skal greiða 400 kr. í vaxtastyrk fyrir hverja ECTS-einingu sem lokið er. Komi í ljós við endurútreikning námsláns að loknu námsári að námsmanni hafi verið úthlutað of háum vaxtastyrk, er það leiðrétt með þeim hætti að ofgreiddur styrkur er færður sem lán á námsárinu.

4.12. Lán vegna ferðakostnaðar. 

4.12.1. Ferðakostnaður námsmanns maka og barna.

Lán vegna ferðakostnaðar miðast við ákveðna upphæð, sem er mismunandi eftir námslandi og námssvæði.
Ef maki sækir einnig um lán á námsárinu á námsmaður ekki rétt á viðbótarláni vegna ferða maka, og lán vegna ferða barna miðast þá við helming þeirra upphæða sem tilgreindar eru í gr. 4.12.2 og gr. 4.12.3.

 

4.12.2. Lán vegna ferða til námsstaðar erlendis.

Ferðalán vegna náms erlendis ákvarðast þannig þegar sótt er um námslán fyrir heilt skólaár: Vegna hvers einstaklings er ferðalán til námsmanna og maka í Danmörku, Noregi og Svíþjóð 35.000 krónur á mann, en 40.500 krónur á einstakling vegna námsmanna og maka annars staðar í Evrópu, 52.000 krónur í Norður Ameríku og 92.000 krónur á einstakling vegna námsmanns og maka annarsstaðar. Lán vegna ferða barna miðast við 10% af ofangreindum fjárhæðum ef barn er yngra en tveggja ára, 75% vegna barna á aldrinum tveggja til tólf ára og 100% vegna barna sem eru eldri en tólf ára. Ekki er skilyrði að menn framvísi gögnum vegna ferðar.

Ofangreindar fjárhæðir eru umreiknaðar í mynt námslands miðað við gengi 1. júní 2009.

 

4.12.3. Lán vegna ferða til námsstaðar á Íslandi.

Ferðalán vegna náms á Íslandi ákvarðast þannig þegar sótt er um námslán fyrir heilt skólaár: Vegna einstaklings og maka 18.000 krónur, en lán vegna ferða barna miðast við 10% af ofangreindri upphæð ef barn er yngra en tveggja ára, 50% vegna barna á aldrinum tveggja ára til tólf ára og 100% vegna barna sem eru eldri en tólf ára. Skilyrði þess að námsmenn á Íslandi eigi kost á ferðaláni er að þeir eigi lögheimili a.m.k. 100 km frá höfuðborgarsvæðinu eða öðru skólasvæði. Ekki er skilyrði að menn framvísi gögnum vegna ferðar. 

4.12.4. Greiðslutími ferðalána.

Ferðalán greiðist út með framfærsluláni að loknum 20 ECTS-einingum.