Mitt svæði

Hér getur þú sótt um og séð stöðu þína.

 

 

Spurt og svarað

Spurt og svarað

Hér getur þú sent fyrirspurnir og fengið svör við almennum spurningum.

Námslán > Úthlutunarreglur > Reglur 2009 - 2010 > Lánshæft nám
     
Kafli I - Lánshæft nám Kafli IV - Lánaflokkar Kafli VII - Lánskjör
Kafli II - Námsframvinda Kafli V - Umsóknir og útborgun Kafli VIII - Fylgiskjöl
Kafli III - Framfærsla og tekjur Kafli VI - Samnorrænar reglur  
     

I. Kafli  - Lánshæft nám

1.1. Almennt. 

Sjóðurinn veitir námslán til framhaldsnáms við viðurkennda skóla eða menntastofnanir sem veita æðri menntun er leiðir til prófgráðu á háskólastigi.  Sjóðnum er heimilt að veita námslán til sérnáms.
Nám telst lánshæft ef það er skipulagt af skóla sem fullt nám, 60 ECTS-einingar á hverju skólaári eða a.m.k. 30 ECTS-einingar á hverju misseri í þeim tilvikum þegar námsskipulagið nær ekki yfir heilt skólaár.
Heimilt er að veita einungis skólagjaldalán til náms sem ekki er skipulagt sem 60 ECTS-eininga nám á skólaárinu, sbr. 2. m.gr.  Námið verður þó að vera skipulagt sem a.m.k. 45 ECTS-eininga nám á hverju námsári, þ.e. 75% af fullu námi, sbr. gr. 2.1, þó aldrei á lengri tíma en 12 mánuðum.
Lán er ekki veitt til náms sem er liður í launuðu starfi samkvæmt ráðningarsamningi.
Þetta gildir m.a. um launað framhaldsnám lækna.
Lán er ekki veitt til undirbúningsnáms né heldur til náms sem er framhald af doktorsprófi eða sambærilegu prófi.
Skilyrði til aðstoðar frá sjóðnum er að viðkomandi sé fjárráða.
Hafi námsmaður fullnýtt svigrúm sitt til lána á ákveðinni námsbraut eða ákveðnu skólastigi, sbr. gr. 2.1., telst frekara nám á viðkomandi námsbraut/skólastigi ekki lánshæft.
 

1.2. Lánshæft nám á Íslandi.

1.2.1. Á háskólastigi.

Nám á háskólastigi er lánshæft og það nám annað sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Nám á háskólastigi í eftirtöldum skólum er lánshæft:
Háskóli Íslands
Háskólinn á Akureyri
Háskólinn á Bifröst
Háskólinn á Hólum
Háskólinn í Reykjavík
Landbúnaðarháskólinn
Listaháskóli Íslands

 

1.2.2. Sérnám á Íslandi.

 Nám í fjölbrauta- og menntaskólum og öðrum skólum sem bjóða upp á nám sem er liður í undirbúningi til stúdentsprófs eða sambærilegs prófs, er ekki lánshæft skv. þessari grein.

Lánshæft sérnám á Íslandi er löggilt iðnnám og annað a.m.k. eins árs starfsnám á framhaldsskólastigi, samþykkt af menntamálaráðuneyti, skipulagt af viðkomandi starfsgreinaráði, sem ekki er launað skv. kjarasamningi umfram grunnframfærslu á Íslandi, sbr. gr. 3.1.1. og 3.2. Námið er lánshæft þann tíma sem það er kennt í skóla að undanskildu fyrsta eða fyrstu tveimur misserunum, sbr. 3. mgr., ef hægt er að leggja stund á það beint eftir grunnskólapróf. Ef krafist er aðfaranáms á framhaldsskólastigi er aðfaranámið (fornámið) einnig ólánshæft. Að meðtöldum launuðum starfsnámstíma er námið að hámarki lánshæft 75% af heildartíma námsins. Ef sérnám beint eftir grunnskólapróf er skipulagt sem fimm missera nám eða styttra í skóla er það ólánshæft fyrsta misserið, en annars tvö fyrstu misserin (6-8) missera nám.

Skilyrði láns vegna náms á frumgreinasviði Háskólans í Reykjavík, í frumgreinadeild Háskólans á Bifröst, háskólabrú Keilis og frumgreinasviði Háskólaseturs Vestfjarða er að námsmaður hafi áður lokið lánshæfu starfsnámi, þ.e. burtfararprófi/sveinsprófi úr skóla, eða hafi jafngilda reynslu úr atvinnulífinu, þ.e. starfsreynslu sem samsvarar fullri atvinnuþátttöku í a.m.k. fimm ár.

Nánar er gerð grein fyrir lánshæfu sérnámi á Íslandi í fylgiskjali III.

 

1.2.3. Réttindi erlendra námsmanna.

Námsmenn frá Norðurlöndum, sem heimilisfastir eru á Íslandi og stunda lánshæft nám hérlendis, njóta námsaðstoðar til jafns við íslenska námsmenn enda hljóti þeir ekki námsaðstoð frá heimalandi sínu sbr. samkomulag milli Norðurlanda um þessi efni eins og það er á hverjum tíma. Heimilt er að láta þetta ákvæði taka til einstakra annarra erlendra ríkisborgara, njóti íslenskir námsmenn sambærilegra réttinda í heimalandi þeirra.

Erlendir ríkisborgarar teljast fá lánsrétt eins og íslenskir námsmenn á þeirri önn sem samþykkt er að veita þeim ríkisborgararétt.
Ríkisborgarar ríkja á Evrópska efnahagssvæðinu (EES) sem hafa búsetu hérlendis vegna starfs síns, fjölskyldur þeirra og aðrir sem eru eða hafa verið á þeirra framfæri, eiga rétt á námslánum eins og íslenskir námsmenn.

1.3. Lánshæft nám í útlöndum.

1.3.1. Háskólanám.

Lánað er til framhaldsnáms við viðurkenndar stofnanir erlendis, sem gera sambærilegar kröfur til nemenda og gerðar eru í háskólanámi hérlendis, sjá þó ákvæði gr. 4.8. um lán vegna skólagjalda.

1.3.2. Sérnám.

Heimilt er að veita lán til sérnáms erlendis. Lánshæfi er háð því að um sé að ræða a.m.k. eins árs skipulagt nám sem talist getur nægilega veigamikið, að því er varðar eðli þess, uppbyggingu og starfsréttindi, að mati stjórnar sjóðsins. Ekki er lánað til starfsnáms sem er launað skv. kjarasamningi umfram grunnframfærslu, sbr. grein 3.1.2 og grein 3.2.

1.3.3. Einkanám í tónlist.

Skilyrði láns til einkanáms í tónlist er að umsækjandi hafi lokið framhaldsprófi í tónlistarnámi skv. aðalnámskrá tónlistarskóla á Íslandi eða viðurkenndu háskólaprófi í tónlist erlendis, t.d. bachelor prófi í Bandaríkjunum eða sambærilegu prófi. Hámarksnámstími sem lánað er til einkanáms er allt að þremur námsárum eða 180 ECTS-einingum, sbr. þó gr. 2.3.4.  Umsækjandi þarf að leggja fram upplýsingar um nafn og stöðu kennara, viðfangsefni, námsfyrirkomulag, tónleika ásamt efnisskrám og staðfestingu kennara.

1.3.4. Tungumálanám sem undirbúningsnám.

Heimilt er að veita lán til tungumálanáms við útlendingadeildir háskóla ef það er undirbúningur undir nám í landi þar sem annað tungumál en enska eða norðurlandamál annað en finnska er talað. Heimilt er að líta á undirbúningsnám í tungumálum sem nám á framhaldsháskólastigi, sbr. gr. 2.3.3. hafi námsmaður lokið grunnháskólanámi og hyggist stunda framhaldsháskólanám í sömu grein.Ef námsmaður hefur áður fengið lán til að stunda nám í viðkomandi tungumáli er ekki veitt lán til undirbúningsmálanáms.Hámarksnámstími, sem veitt er lán til skv. þessari grein, fer eftir viðkomandi tungumáli og er á bilinu hálft til eitt og hálft námsár og er nánar tiltekinn í fylgiskjali II.

Ef lánþegi skiptir um námsland að loknu tungumálanámi er honum synjað um aðstoð jafn lengi og hann naut aðstoðar í því námi. Fái námsmaður tungumálanámið metið til styttingar á nýju námi kemur það til styttingar á þeim tíma sem námsmaður á ekki rétt á aðstoð.

 Lánshæfi undirbúningsnáms í tungumálum er háð því að um sé að ræða a.m.k. tveggja mánaða skipulagt nám sem talist getur nægjanlega veigamikið að því er varðar eðli og uppbyggingu að mati stjórnar sjóðsins (a.m.k. 15 kennslustundir á viku). Einungis er veitt lán einu sinni til undirbúningsnáms í tungumálum.
 Áður en lán vegna undirbúningsnáms í tungumálum er afgreitt að fullu þarf að liggja fyrir staðfesting á inngöngu í fagnám.

1.3.5. Upplýsingar um lánshæft nám erlendis.

Hjá sjóðnum liggja fyrir upplýsingar um skóla og námsbrautir sem lánað er til. Ef sótt er um skóla eða námsbraut sem ekki hefur verið lánað til þarf stjórn sjóðsins að fjalla um málið. Námsmaður þarf þá að útvega ítarlegar upplýsingar um námið.