Námslán > Útlán > Umsókn til útborgunar

Frá umsókn til útborgunar

Frá því að umsókn um námslán berst til LÍN og þar til lán er greitt út í lok annar þurfa nemendur að standa skil á ákv. upplýsingum.

  1. Staðfesting á skólavist: Staðfestinguna verða þeir námsmenn á Íslandi að senda sem borga há skólagjöld og einnig námsmenn erlendis sem eru að hefja nýtt nám. Umsóknin tekur ekki formlega gildi fyrr en slík staðfesting hefur borist sjóðnum.
  2. Útreikningur á láni: LÍN sendir „Lánsáætlun“ inn á "Mitt svæði hjá LÍN" í heimabanka umsækjanda. Námsmenn sem sækja um lán á pappírsumsókn fá fyrstu lánsáætlun senda í pósti á heimilisfang sitt. Lánsáætlun er staðfesting á gildri umsókn. Fyrirframgreiðsla skólagjalda hefst til þeirra sem eiga rétt á því.
  3. Skuldabréf: Námsmenn fá sent skuldabréf sem þarf að samþykkja til að hægt greiða út lán þegar þar að kemur.
  4. Enskumælandi lönd: Senda þarf til LÍN upplýsingar um skólagjöld og styrk/styrkleysi fyrir hverja önn eða allt námsárið.
  5. Endanleg tekjuáætlun: Staðfesta verður tekjuáætlun áður en útborgun haustlána fer fram.
  6. Námsárangur: Námslán eru afgreidd þegar námsárangur hefur borist. Skólar á Íslandi senda árangurinn beint til LÍN, en námsmenn erlendis verða að sjá um það sjálfir. Þeir sem ekki taka próf á miðjum vetri verða að senda staðfestingu á námsástundun.
  7. Útborgun láns: Lágmarksnámsárangur er 20 ECTS-einingar. Greiðslan er lögð inn á bankareikning námsmanns.
  8. Skattframtal: Allir lánþegar verða að staðfesta endanlegar tekjur með afriti af skattframtali. Námsmenn á Norðurlöndunum verða einnig að senda afrit af álagningarseðlum. Í Danmörku „årsopgørelse“, í Noregi „skatteoppgjör“ og Svíþjóð „slutlig skatsedel“. Barnlausir einstaklingar á Íslandi í leiguhúsnæði verða að skila leigumiða (RSK 2.02).

Ef þú stendur skil á umbeðnum upplýsingum og uppfyllir reglur LÍN um námsframvindu, þá ábyrgist sjóðurinn að námslán þitt verður afgreitt á réttum tíma skv. reglum sjóðsins.