Námslán > Útlán > Lánsáætlun

 

Lánsáætlun 2009-2010

Lánsáætlun miðast við þann fjölda ECTS-eininga eða ígildi þeirra sem námsmaður hefur áætlað að hann muni taka á skólaárinu. Endanleg úthlutun námslána miðast svo við loknar ECTS-einingar eða ígildi þeirra. Allar upphæðir eru í mynt námslands. Frá veittu láni er dregið 1,2% lántökugjald. Hér fyrir neðan eru hinir ýmsu liðir lánsáætlunar skýrðir nánar.

 

Einingar (allar einingar miðast við ECTS-einingar)

Hér kemur fram fjöldi umsóttra ECTS-eininga. Ef annað einingakerfi er við lýði í viðkomandi skóla eru einingar skv. skipulagi skólans sýndar í sviga fyrir aftan. Þegar námsmaður hefur lokið námsárangri á námsárinu kemur sá fjöldi eininga fram í "loknar einingar". 

Sundurliðun í útreikningsmynt námslands

 

Lánseiningar: Sýnt er lán miðað við þann ECTS-einingafjölda sem námsmaður ætlar að taka á námsárinu. Þegar lán kemur til afgreiðslu kemur fjöldi afgreiddra eininga í dálkinn "samtals afgreitt".
Aðstoðarár: Hér kemur fram hvort sótt er um heilt aðstoðarár eða hluta úr aðstoðarári.
Framfærslulán: Lánsréttur miðað við tiltekinn fjölda ECTS-eininga.
Bókalán: Upphæð láns sem viðkomandi á rétt á til bókakaupa.
Skólagjaldalán: Ef umsækjandi þarf að borga skólagjöld og á rétt á lánum vegna þeirra kemur sú upphæð að frádregnum 45.000 kr. eða jafngildi í annarri mynt fram hér. Námsmenn erlendis verða sjálfir að útvega upplýsingar um skólagjöld sem þeir þurfa að greiða, en flestir skólar á Íslandi senda slíkar upplýsingar beint til sjóðsins.
Ferðalán: Hér kemur fram upphæð ferðaláns. Námsmenn þurfa ekki að senda sjóðnum staðfestingu á að ferð hafi verið farin.
Meðlagslán: Upphæð meðlagsláns ef umsækjandi sækir um og á rétt á slíku láni. Sækja þarf um meðlagslán á hverju námsári.
Önnur lán: Hér koma fram upphæðir aukalána sem viðkomandi kann að hafa sótt um og á rétt á.
Námslán samtals: Heildarupphæð láns miðað við tiltekinn fjölda ECTS-eininga.
Áður afgreitt: Hafi námsmaður þegar fengið afgreitt lán á námsárinu kemur það fram hér.
Til afgreiðslu: Hér birtist sá hluti námsláns sem er til afgreiðslu hverju sinni.

Nám

Hér koma fram upplýsingar um námsland, skóla, nám og námsgráðu. Fjöldi mögulegra aðstoðarára kemur fram miðað við lánsrétt skv. greinum 2.3.2 og 2.3.3 í úthlutunarreglum LÍN (5 og 10 ára regla). Einnig er sýnt hversu mörgum einingum viðkomandi hefur lokið skv. ECTS-einingakerfinu. Ef viðkomandi á inni ónotaðar einingar eru þær tilgreindar hér. 

Námsmaður 

Upplýsingar um fjölskyldu umsækjanda eru skv. upplýsingum úr þjóðskrá, þ.e. um maka, fjölda barna undir 19 ára aldri á framfæri námsmanns. Hér er tilgreind tegund  húsnæðis eins og námsmaður hefur gefið til kynna á umsókn. Einnig koma hér fram upplýsingar um tekjur umsækjanda á árinu 2009. Ef sótt er sérstaklega um makalán er það staðfest hér og tekjur maka tilgreindar.

Hér kemur einnig fram sá bankareikningur sem námsmaður hefur óskað eftir að lánin verði lögð inn á. Númer skuldabréfs kemur fram ef námsmaður hefur áður skilað því inn til sjóðsins.