Umsókn um jöfnunarstyrk er á Mínu svæði námsmanna
Nemendur á framhaldsskólastigi sem þurfa að stunda nám fjarri heimahögum og fjölskyldu geta átt rétt á jöfnunarstyrk. Námsstyrkjanefnd úthlutar styrkjum til styrkhæfra nemenda. Umsóknir skulu berast til LÍN. Umsóknarfrestur á haustönn er til 15. október. Vegna vorannar/sumarannar eingöngu, er umsóknarfrestur þó til 15. febrúar.
Hægt er að sækja um styrkinn á „Mínu svæði“ námsmanna eftir innskráningu hjá:
Myndir úr heimabönkunum sem sýna tengingarnar inn á Mitt svæði má sjá hér.
Sjóðurinn hvetur umsækjendur til að kynna sér vel helstu upplýsingar um styrkinn og leiðbeiningar um skráningu. Þeir sem óska aðstoðar eru jafnframt hvattir til að leita til sjóðsins með tölvupósti (lin@lin.is) eða í síma 5604000. Eigi einhver ekki kost á að skrá umsókn sína á vefnum er hann vinsamlega beðinn um að hafa samband við sjóðinn. Póstfang sjóðsins er: LÍN, Höfðaborg, Borgartúni 21, 105 Reykjavík.
Nánari upplýsingar er að finna í reglugerð um námsstyrki.





