Main Content

Veðtrygging

Sé krafist ábyrgðar til tryggingar námsláni umfram sjálfskuldarábyrgð námsmanns er hægt að leggja fram veðtryggingu í stað ábyrgðarmanns.

Námsmaður getur óskað eftir því að setja fasteign að veði til tryggingar námsláni. 

Gögn þarf að leggja fram

  1. Veðbókarvottorð (þinglýsingarvottorð) fasteignarinnar, frá sýslumanni.
  2. Núverandi eftirstöðvar þeirra lána sem eru á þinglýsingarvottorði, frá viðkomandi lánastofnun(um).
  3. Fasteigna- og brunabótamat frá Þjóðskrá Íslands.

Miðað er við að áhvílandi lán að viðbættu láni frá sjóðnum fari ekki yfir 65% af fasteignamati íbúðarhúsnæðis og sé innan 65% af brunabótamati. 

Heimilt er að fara fram á sölumat löggilts fasteignasala og er þá miðað við 60% af sölumati.

Séu skilyrðin hér fyrir ofan uppfyllt útbýr LÍN veðtryggingarbréf sem verður sent eiganda fasteignarinnar til undirritunar.

Þegar undirrituðu veðtryggingarbréfi hefur verið skilað til LÍN er því þinglýst. Að lokinni þinglýsingu tekur veðtryggingin gildi.

Námsmenn

Jöfnunarstyrkur

Greiðendur

Ábyrgðarmenn

Um LÍN