Afborganir
Endurgreiðsla námslána
- Afborgun hefst tveimur árum eftir námslok.
- Greitt er af námslánum tvisvar sinnum á ári, föst afborgun og tekjutengd.
- Vextir reiknast frá lokun skuldabréfs, sem er við lok síðasta lánamisseris. Fái námsmaður greitt út lán eftir lokun skuldabréfs, þá reiknast vextir á þá greiðslu frá deginum eftir útborgun.
- Fjórir námslánaflokkar eru nú í endurgreiðslu. Það eru G-lán veitt frá árinu 2005, R-lán veitt árin 1992-2005, S-lán/T-lán veitt árin 1982-1992 og V-lán veitt fyrir árið 1982.
- Endurgreiðslur námslána taka mið af ákvæðum hvers skuldabréfs og þeim lögum sem í gildi voru þegar lánin voru tekin. Að öðru leyti gilda samþykktar úthlutunarreglur hverju sinni.
- Landsbankinn innheimtir lán sem LÍN veitti á markaðskjörum vegna skólagjalda erlendis árin 1992-2005.
Ef fleiri en eitt lán eru í innheimtu
- Lánþegi sem skuldar eldri námslán en G–lán skal fyrst endurgreiða eldri lánin.
- Á næsta almanaksári eftir að endurgreiðslu þeirra lýkur eða á að vera lokið skal hann hefja endurgreiðslu G–lánsins.
- Ef lánþegi skuldar fleiri en eitt G-lán skal greitt af elsta láninu fyrst.
- Ef lánþegi skuldar R–lán og jafnframt V– eða S–lán skal hann fyrst greiða R–lánið.
- Ef lánþegi greiðir bæði af V– og S–láni dragast afborganir V–láns frá afborgunum S–lánsins.