Main Content

Frysting námslána

Frysting námslána er tímabundið úrræði (frá 12. mars 2010) fyrir lántaka sem þegar eru með frystingu á öðrum lánum sínum, eru komnir með sértæka skuldaaðlögun eða mat frá Umboðsmanni skuldara þar sem fram kemur að greiðslugeta sé það slæm að grípa þurfi til sértækra úrræða hjá kröfuhöfum. 

Frysting getur ekki orðið ef greiðandi er í vanskilum við LÍN frá því fyrir árið 2010. Ef vanskilin ná einnig til gjalddaga frá 2009 er umsækjanda ráðlagt að hafa samband við starfsfólk LÍN.

Fortakslaust er að lán í vanskilum frá því fyrir árið 2009 verða ekki fryst. Sótt er um á Mínu svæði.

Senda þarf LÍN yfirlýsingu frá viðskiptabanka og/eða tillögu frá Umboðsmanni skuldara  sem staðfestir að um verulega fjárhagsörðugleika sé að ræða.

Lengd frystingartímabils hjá LÍN fer eftir tímalengd annarra úrræða vegna skuldavanda, en LÍN veitir að hámarki frystingu lána í 3 ár.

Með frystingu námslána er átt við hefðbundnar afborganir námslána, þ.e. árlegar afborganir eins og þær eru skilgreindar í gr. 7.4. en gildir ekki um ofgreiðslulán, aukagjalddaga og almenn skuldabréf sem hafa verið gefin út vegna vanskila.

Stjórn LÍN fjallar sérstaklega um frystingu markaðskjaralána.

Námsmenn

Jöfnunarstyrkur

Greiðendur

Ábyrgðarmenn

Um LÍN