Main Content

Greiðsludreifing

Til að dreifa afborgunum geta greiðendur valið milli tveggja kosta:

  • Greiðsludreifingu hjá LÍN
  • Greiðsludreifingarþjónustu hjá banka

Greiðsludreifing LÍN

Gjalddögum ársins, hvorum um sig, það er fastri afborgun á fyrri hluta árs og tekjutengdri afborgun á seinni hluta árs er dreift 4 eða 6 mánuði skv. vali lántaka. Með þessu móti er verið að bjóða upp á mánaðarlegar greiðslur. Greiðsludreifingin er í boði fyrir alla sem eru í skilum með eldri afborganir.  Hægt er að sækja um á Mínu svæði.

Dreifigreiðslurnar eru greiddar gegnum íslenskan banka (í íslenskum heimabanka, í beingreiðslu eða hjá gjaldkera í íslenskum banka). Þegar sótt hefur verið um greiðsludreifingu birtist krafan dreifð í heimabankanum. Hverja dreifigreiðslu þarf að greiða í heilu lagi.

Afgreiðslugjald er 1,5% vegna 4 mánaða dreifingar en 2% vegna 6 mánaða dreifingar, sem leggst á fyrstu dreifigreiðsluna.  Afborgun undir kr. 30.000 er ekki dreift.

Greiðsludreifing hefst frá og með næstu afborgun eftir umsókn, en sé sótt um innan tveggja mánaða frá gjalddaga afborgunar, er unnt að fá greiðsludreifinguna frá og með þeirri afborgun.

Greiðsludreifingarþjónusta hjá banka

Gert er samkomulag milli greiðanda og viðskiptabanka hans án milligöngu LÍN.
 

Námsmenn

Jöfnunarstyrkur

Greiðendur

Ábyrgðarmenn

Um LÍN