Greiðslur erlendis frá
Greiðslur frá útlöndum
- Greiðandi gefur hinum erlenda viðskiptabanka sínum upp upphæðina sem á að yfirfæra í erlendri mynt.
- Greiðandi gefur upp viðeigandi greiðsluleið miðað við mynt lands.
- Mikilvægt er að merkja greiðsluna með kennitölu og fullu nafni lántaka.
Upphæð greiðslu í erlendri mynt
- Upphæð í íslenskum krónum sem viðkomandi greiðandi vill koma til skila.
- Gengi íslensku krónunnar gagnvart viðkomandi erlendri mynt.
- Kostnaði sem bankar leggja á þjónustuna.
Annað sem hafa þarf í huga
- Greiðendum er bent á að gera ráð fyrir ísl.kr. 700 í íslenskan bankakostnað og e.t.v. erlendum bankakostnaði.
- Nýjustu gengisupplýsingar hverju sinni má finna á vef Seðlabanka Íslands. Með því að yfirfæra upphæð í erlendri mynt sem samsvarar (skuld í ísl.kr./gengi + kostnaður banka) er greiðandi nálægt því að senda rétta upphæð.
- LÍN fær greiðsluna í íslenskum krónum á gengi móttökudags.
- Hugsanlegur munur á gengi sendingardags og móttökudags er ekki á ábyrgð LÍN.
- Fái LÍN lægri upphæð í íslenskum krónum en sem nemur afborgun og mögulega áföllnum gjöldum er afborgunin talin óuppgerð.
- Fái LÍN hærri upphæð en sem nemur afborgun og mögulega áföllnum gjöldum er umframfjárhæðin færð sem sérgreiðsla inn á lánið og kemur til lækkunar þess.