Main Content

Sérgreiðslur

Almennt

  • Unnt er að greiða inn á lán eða greiða upp lán hvenær sem er.
  • Ekkert uppgreiðslugjald er tekið.
  • Greiðendur og ábyrgðarmenn geta séð stöðu láns á Mínu svæði.*
  • Greiða skal með millifærslu inn á reikning LÍN, 0111-26-205, kt. 710169-0989.*
  • Senda þarf staðfestingu eða kvittun á netfangið lin@lin.is og hafa kennitölu lánþega í skýringu.
  • Sérgreiðsla hefur ekki áhrif á reglubundnar afborganir.

* Ef lán er í lögfræðiinnheimtu sést ekki heildarskuldastaða á Mínu svæði, viðkomandi lögmannsstofa gefur hana upp og greiðsla þarf að fara fram í gegnum hana.

Ógjaldfallin uppgreiðsla

  • Lánþega er heimilt að greiða upp námslán fyrr en ákvæði skuldabréfs kveða á um.
  • Lánþegi sem greitt hefur upp ógjaldfallið námslán sitt getur óskað eftir að fá endurgreiðslu sem nemur kostnaðarlækkun sjóðsins vegna uppgreiðslunnar. Sú beiðni þarf að hafa borist sjóðnum innan eins árs frá lokauppgjöri láns.
  • Skilyrði er að lánþeginn hafi greitt af námsláninu í a.m.k. fimm ár fyrir uppgjörið.
  • Við mat á endurgreiðslutíma og framtíðarafborgunum af námsláni án uppgreiðslu skal tekið mið af áætluðum framtíðartekjum lánþegans og þær núvirtar með þeim vöxtum sem sjóðurinn greiðir af teknum lánum.
  • Framtíðartekjurnar skulu þó aldrei áætlaðar það lágar að endurgreiðslutími án uppgreiðslu verði umfram 15 ár.

Námsmenn

Jöfnunarstyrkur

Greiðendur

Ábyrgðarmenn

Um LÍN