Main Content

Ábyrgðir á eldri lánum

  • 17.02.2011

LÍN vill árétta í kjölfar umræðu um sjálfskuldarábyrgðir á lánum, að eldri ábyrgðir á námslánum eru enn í fullu gildi.

  1. Sjálfskuldarábyrgðir sem skrifað var undir fyrir gildistöku laganna um ábyrgðarmenn nr. 32/2009, verða ekki ógildar þótt ábyrgðarmanni hafi ekki verið sýnt greiðslumat. Ákvæði laganna sem setja skyldu á lánveitandann um slíkt eru ekki afturvirk.
  2. LÍN var ekki aðili að samkomulagi um notkun ábyrgða á skuldum einstaklinga frá 2001.
  3. Þegar almenna krafan um ábyrgðir á námslánum var afnumin, var sérstaklega tekið fram við þá lagasetningu að hún nái ekki til lánsloforða sem veitt voru fyrir gildistöku laganna, sbr. bráðabirgðaákvæði laga nr. 78/2009.

Sjóðurinn hvetur greiðendur námslána eindregið til að standa í skilum, þannig losna ábyrgðarmenn við öll óþægindi!

Námsmenn

Jöfnunarstyrkur

Greiðendur

Ábyrgðarmenn

Um LÍN