Main Content

Greiðendur búsettir erlendis

  • 09.07.2010

LÍN vill benda greiðendum sem búsettir eru erlendis á þægindi sem felast í því að hafa íslenskan heimabanka (netbanka).

Frá heimabankanum er unnt að tengjast Mínu svæði hjá LÍN. Þar er unnt að sjá stöðu láns hverju sinni, áramótastöðu og skrá netfang sem LÍN mun nota í tölvupóstsamskiptum við greiðanda.

Í íslenskum heimabanka er unnt að sjá ógreiddar íslenskar kröfur og greiða þær sé innstæða fyrir hendi.

Með því að færa senda erlenda greiðslu inn á eigin íslenskan bankareikning og greiða LÍN kröfurnar þaðan getur greiðandi verið þess fullviss að rétt upphæð skili sér til LÍN.

Þegar hins vegar erlend greiðsla er send beint til LÍN er það háð skráningu gengis hverju sinni hvaða upphæð skilar sér til LÍN.

Námsmenn

Jöfnunarstyrkur

Greiðendur

Ábyrgðarmenn

Um LÍN