Main Content

Ógjaldfallnar uppgreiðslur lána

  • 17.05.2013

Lánþega er heimilt að greiða upp námslán fyrr en ákvæði skuldabréfs kveða á um.

Lánþegi sem greitt hefur upp ógjaldfallið námslán sitt getur óskað eftir að fá endurgreiðslu sem nemur kostnaðarlækkun sjóðsins vegna uppgreiðslunnar.

Skilyrði er að lánþeginn hafi greitt af láninu í a.m.k. fimm ár fyrir uppgjörið.

Við mat á endurgreiðslutíma og framtíðarafborgunum af námsláni án uppgreiðslu skal tekið mið af áætluðum framtíðartekjum lánþegans og þær núvirtar með þeim vöxtum sem sjóðurinn greiðir af teknum lánum.

Framtíðartekjurnar skulu þó aldrei áætlaðar það lágar að endurgreiðslutími án uppgreiðslu verði umfram 15 ár.

Sjá grein 7.3.3 í úthlutunarreglum LÍN.

Námsmenn

Jöfnunarstyrkur

Greiðendur

Ábyrgðarmenn

Um LÍN