Tekjutengd afborgun
Kröfur vegna tekjutengdra afborgana G-, R- og S- námslána með gjalddaga 1. september hafa verið myndaðar.
Þær birtast í íslenskum heimabönkum lántaka undir "ógreiddar kröfur".
Sundurliðun kröfu og upphæð tekjustofns sem útreikningur byggist á er birt á Mínu svæði sem lántaki tengist í gegnum íslenskan heimabanka sinn eða í gegnum island.is.
Greiðsluseðlar eru ekki sendir út nema greiðendur óski sérstaklega eftir því á Mínu svæði eða með því að senda tölvupóst á lin@lin.is.