Main Content

Breyttur frystingartími

  • 03.12.2010

Frá og með áramótum verður frysting námslána veitt í meira samræmi við þau skuldaúrræði sem greiðendur hafa fengið annars staðar.

Frystingartímabil verður þannig mislangt en að hámarki þrjú ár og stjórnast lengd tímabilsins af því til hversu langs tíma önnur skuldaúrræði hafa verið veitt. Skilyrði fyrir frystingu námslána verður eftir sem áður að LÍN berist yfirlýsing frá viðskiptabanka eða Umboðsmanni skuldara sem staðfesta greiðsluerfiðleika og sértæk úrræði vegna annarra skulda. Hægt er að sækja um frystingu á Mínu svæði LÍN.

 

Námsmenn

Jöfnunarstyrkur

Greiðendur

Ábyrgðarmenn

Um LÍN