Námsmenn
Sækja um í fyrsta sinn - að hverju þarf að huga
- Námsmenn sem stunda lánshæft nám geta sótt um námslán hjá LÍN.
- Ákveðnar reglur gilda um hvaða nám er lánshæft, um námsframvindu, tekjumörk og fleira sem námsmenn geta kynnt sér hér á vefnum.
- Skilyrði sem umsækjendur þurfa að uppfylla eru m.a. að vera fjárráða (18 ára), ef þeir hafa áður fengið lán þá þurfa þeir að vera í skilum við sjóðinn. Einnig gilda ákveðin búsetuskilyrði og/eða skilyrði um tengsl við Ísland sem íslenskir og erlendir ríkisborgarar þurfa að uppfylla.
Mitt svæði er einkasvæði viðskiptavina LÍN þar sem þeir geta sótt um námslán, skilað gögnum og skoðað stöðu sinna mála.
Jöfnunarstyrkur
- ATH Allar upplýsingar um jöfnunarstyrk er að finna undir flipanum jöfnunarstyrkur.
Námsmenn erlendis - sértæk atriði
- Hægt er að sækja um námslán vegna náms erlendis. Mikilvægt er að kynna sér hvaða reglur gilda en hægt er að skoða hvaða skólar eru á skrá hjá LÍN.
- Námsmenn erlendis þurfa að skila inn námsárangri þegar hann liggur fyrir.
- Umboðsmaður gegnir mikilvægu hlutverki á meðan námsmaður stundar sitt nám erlendis.
Skiptinemar - sértæk atriði
Ef námsmaður ætlar í skiptinám þarf að sækja sérstaklega um það á Mínu svæði.- Fyrst er sótt um námslán í heimalandi og síðan er sótt um breytta framfærslu.
- Mikilvægt er að kynna sér þær reglur sem gilda um skiptinám áður en sótt er um.
Annað nám en háskólanám
- Sérnám á Íslandi og erlendis er lánshæft að einhverju leyti. Mikilvægt er að kynna sér vel hvaða möguleikar eru til staðar.
Réttindi erlendra ríkisborgara
- Erlendir ríkisborgarar sem eiga lögheimili á Íslandi og stunda lánshæft nám geta átt rétt á námslánum.
Ábyrgð þín
- Umsækjendur verða að kynna sér vel úthlutunareglur LÍN og vera meðvitaðir um skyldur sínar gagnvart sjóðnum.
-
Skila skal þeim gögnum sem námsmenn kunna að verða beðnir um eins fljótt og auðið er.
-
Ef gögnum er ekki skilað innan 2ja mánaða er heimilt að fella umsókn úr gildi.