Útborgun lána er hafin
Almenn útborgun lána vegna haustannar 2010 er hafin til þeirra sem náð hafa lánshæfum árangri (að lágmarki 18 ECTS-ein.) og skilað hafa umbeðnum gögnum til sjóðsins.
Umsækjendur geta sjálfir fylgst með sínum lánamálum á "Mínu svæði" hjá LÍN. Þar sjá umsækjendur hvort þeir eigi eftir að skila einhverjum gögnum, hvort námsárangur hafi borist frá skóla og hvort námslán hafi verið afgreitt. Skólar á Íslandi senda sjóðnum námsupplýsingar fyrir sína nemendur, en námsmenn erlendis verða sjálfir að útvega staðfestar upplýsingar um námsárangur.