Námsmenn í frumgreinadeildum athugið
Vakin er athygli á því að skv. úrskurði málskotsnefndar LÍN nr. 42/2010 geta allir námsmenn í frumgreinadeildum sótt um námslán á vorönn 2011.
Ekki er lengur skilyrði að hafa lokið starfsnámi eða vera með fulla 5 ára atvinnuþátttöku. Umsókn um lán á vorönn þarf að skila fyrir 1. maí 2011.