Námsmenn í leiguhúsnæði
Barnlausir námsmenn í leiguhúsnæði á Íslandi þurfa að staðfesta leigugreiðslur á árinu 2012. Þeir gera það með því að fylla út Greiðslumiða vegna húsaleigu, RSK 2.02, sem er fylgiskjal með skattframtali 2013.
Þegar búið er að opna vefframtalið er hægt að nálgast greiðslumiðann undir Fylgiskjöl og 2.02. Greidd leiga.
Fylla skal greiðslumiðann út um leið og skattframtalið og senda til RSK.
Ekki er tekið við greiðslumiðanum hjá LÍN.
Lánasjóðurinn fær síðan upplýsingar um að viðkomandi hafi skilað greiðslumiðanum um leið og sendar eru tekjuupplýsingar úr skattframtali námsmanns í vor.
Athugið að útfylling greiðslumiðans telst staðfesting á því að viðkomandi sé í leiguhúsnæði á námsárinu 2012-2013.