Main Content

Skattframtalstekjur og greiðslumiði vegna húsaleigu RSK 2.02

  • 06.03.2013

Allir umsækjendur námslána 2012-2013 verða að tryggja að tekjuupplýsingar úr skattframtali berist sjóðnum.

Telji þeir tímanlega fram á netinu munu upplýsingarnar berast rafrænt til LÍN.

Barnlausir námsmenn í leiguhúsnæði þurfa að sanna leigugreiðslur á árinu 2012 með því að fylla út og senda greiðslumiða vegna húsaleigu RSK 2.02 með skattframtalinu. Þeir sem búa á heimavistum skóla eða nemendagörðum eru þó undanþegnir þessu þar sem LÍN hefur fengið staðfestingar frá skólunum (flestum).

 Þegar búið er að opna vefframtalið er hægt að nálgast greiðslumiðann undir Fylgiskjöl - 2.02. Greidd leiga.
   

Námsmenn

Jöfnunarstyrkur

Greiðendur

Ábyrgðarmenn

Um LÍN