Endanleg tekjuáætlun 2012
Áður en hægt er að afgreiða lán vegna náms á haustmisseri 2012 verða umsækjendur að skila endanlegri tekjuáætlun 2012 til LÍN.
Farið er inn á Mitt svæði í gegnum island.is með veflykli ríkisskattstjóra beint frá heimasíðu LÍN. Þegar inn á island.is er komið er farið inn á "Mínar síður" og síðan "Islandstorg".
Einnig er hægt að tengjast Mínu svæði frá íslenskum heimabönkum og Innu (vef framhaldsskólanna). Þegar inn á Mitt svæði er komið er fyrst valið "Námsmenn" síðan "Skrá/breyta" og að lokum eyðublaðið "Tekjuáætlun 2012".
Ný tekjuáætlun er forsenda þess að haustlánið verði borgað út, jafnvel þó að upphafleg tekjuáætlun sé óbreytt.