Main Content

Lokun skuldabréfa - frestur til 1. desember 2012

  • 29.10.2012

Námsmenn sem fengu síðast lán á námsárinu 2010-2011 hafa fengið senda tilkynningu um að endurgreiðslur eigi að hefjast á árinu 2013. Þeir sem hafa haldið áfram í lánshæfu námi eftir þann tíma, án þess að sækja um námslán, geta sótt um að fresta lokun skuldabréfs og upphafi endurgreiðslna.

Sækja þarf sérstaklega um frestunina á Mínu svæði hjá LÍN og senda jafnframt námsárangur til sjóðsins. Senda má gögn í tölvupósti á lin@lin.is.

 

Námsmenn

Jöfnunarstyrkur

Greiðendur

Ábyrgðarmenn

Um LÍN