Annað nám á Íslandi
Lánshæft til framfærsluláns og annarra lána
- Löggilt iðnnám.
- Annað viðurkennt starfsnám á framhaldsskólastigi sem hefur fengið jákvæða umsögn af viðeigandi starfsgreinaráði.
Ekki er lánað fyrstu 1-2 annirnar ef námið byrjar beint eftir grunnskóla. Námsmenn á samningi geta átt rétt á námsláni ef umsamin laun eru lægri en grunnframfærsla.
Reglur LÍN miðast út frá svokölluðum ECTS einingum. Sérnám er á framhaldsskólastigi og því um annað einingakerfi að ræða.
Mikilvægt er að kynna sér hvernig einingar viðkomandi sérnáms umreiknast í ECTS einingar.
Nemalaun eru meðhöndluð eins og aðrar tekjur samkvæmt reglum sjóðsins og geta skert lánið.
Athugið að almennt nám í framhaldsskóla til stúdentsprófs eða sambærilegs prófs er ekki lánshæft. Hins vegar geta framhaldsskólanemar átt rétt á jöfnunarstyrk ef þeir stunda nám fjarri heimahögum.