Nám erlendis
Háskólanám erlendis
Námslán til framfærslu- og skólagjalda eru veitt til náms við viðurkennda háskóla sem gera sambærilegar kröfur til undirbúningsnáms (stúdentspróf eða sambærilegt) og háskólar á Íslandi.
Sérnám erlendis
Námsmenn í sérnámi erlendis geta fengið lán ef um er að ræða fullt nám í a.m.k. eitt skólaár.
Er þá átt við iðnnám, starfsnám og annað nám í skóla sem viðurkenndur er af menntamálayfirvöldum í viðkomandi landi.
Lánasjóðurinn metur hvort námið er nógu veigamikið varðandi uppbyggingu, inntökuskilyrði og starfsréttindi að námi loknu.
Einkanám í tónlist
- Námsmaður verður að hafa lokið viðurkenndu háskólaprófi í tónlist áður en sótt er um einkanám í tónlist.
- Að hámarki er lánað í tvö skólaár til einkanáms í tónlist.
Tungumálanám sem undirbúningur
- Námsmenn geta fengið námslán til tungumálanáms ef þeir hyggja á frekara nám í landinu.
- Lánið er ekki greitt út fyrr en sýnt er fram á innritun í frekara lánshæft nám í sama landi eða málsvæði.
- Ekki er lánað til tungumálanáms til undirbúnings ef um er að ræða ensku, dönsku, norsku eða sænsku.
Skrá yfir lánshæfa skóla
LÍN heldur skrá yfir lánshæfa skóla. Erlendir skólar eru ekki settir á skrá hjá LÍN nema námsmaður hafi áður sótt um lán til þess skóla hjá LÍN og fengið samþykkt.
Athugið Ef skóli er ekki á skrá þýðir það ekki endilega að hann sé ólánshæfur. Námsmenn geta sent upplýsingar um skóla sem þeir hafa áhuga á og látið meta hvort skólinn eða námið gæti verið lánshæft.