Lán v. sérstakra aðstæðna
Lán vegna röskunar á stöðu og högum námsmanns
- Við sérstakar ófyrirséðar breytingar, s.s. veikindi eða andlát í nánustu fjölskyldu getur námsmaður á rétt á aukaláni sem samsvarar láni fyrir allt að 7 ECTS-einingum.
- Á þetta við t.d. þegar námsmaður getur ekki stundað fullt nám vegna alvarlegra veikinda, örorku sinnar, framfærslu barna eða maka eða af öðrum ástæðum.
- Hafa skal hliðsjón af þeim bótum sem námsmaður fær skv. gildandi tryggingalöggjöf.
Lán vegna sjúkratrygginga
- Námsmenn sem greiða háar sjúkratryggingar geta sótt um aukalán upp í þann kostnað.
- Einnig er heimilt að veita aukalán vegna sjúkrakostnaðar erlendis sem námsmaður hefur fengið að hluta endurgreiddan frá Sjúkratryggingum Íslands.
- Ekki er veitt aukalán fyrir lækniskostnaði erlendis sem Sjúkratryggingar Íslands neita að taka þátt í.
- Ef barnshafandi námsmaður erlendis eða maki námsmanns kýs að fæða barn sitt á Íslandi vegna mikils kostnaðar af barnsfæðingu í námslandinu er heimilt að veita honum aukalán vegna ferðanna.