Main Content

Meðlags- og makalán

Meðlagslán

  • Námsmaður getur sótt um viðbótarlán vegna meðlags. Sækja þarf um á hverju námsári.
  • Sjóðurinn greiðir þá meðlag beint til Innheimtustofnunar sveitarfélaga.
  • Lánað er vegna meðlags 3.250 kr. fyrir hverja ECTS-einingu sem námsmaður lýkur.
  • Sambærileg regla gildir fyrir nám erlendis.
  • Meðlagslánin greiðast út eftir á með framfærslulánum hverrar annar.

Makalán

Við sérstakar aðstæður getur námsmaður sótt um viðbótarlán vegna framfærslu maka á námstíma:

  • Vegna veikinda eða örorku maka skv. læknisvottorði.
  • Ef námsmaður og maki eiga langveikt eða fatlað barn sem maki þarf að sinna heima og getur því ekki unnið utan heimilis.
  • Ef námsmaður og maki eru búsett erlendis, eru með barn á framfæri og maki er heimavinnandi þar sem hann á ekki rétt á atvinnuleyfi í námslandinu.
  • Þeir námsmenn sem fengu makalán skólaárið 2009-2010 og halda áfram í sama námsferli skólaárið 2012-2013 eiga rétta á að sækja um makalán.
  • Þegar sótt er um makalán þá hafa samanlagðar tekjur námsmanns og maka áhrif á upphæð námslánsins.

Athugið: Ekki er veitt makalán ef maki er sjálfur á námslánum á skólaárinu.

Námsmenn

Jöfnunarstyrkur

Greiðendur

Ábyrgðarmenn

Um LÍN