Þín ábyrgð
Umsækjendur verða að kynna sér vel úthlutunareglur LÍN og vera meðvitaðir um skyldur sínar gagnvart sjóðnum. Skila skal þeim gögnum sem námsmenn kunna að verða beðnir um eins fljótt og auðið er. Ef gögnum er ekki skilað innan 2ja mánaða er heimilt að fella umsókn úr gildi.
Ef námsmenn standa skil á umbeðnum upplýsingum og uppfylla reglur LÍN um námsframvindu ábyrgist LÍN að námslán verða afgreidd á réttum tíma skv. reglum sjóðsins.
- Óski námsmaður eftir láni verður hann að sækja um það á hverju námsári fyrir tilskilinn umsóknarfrest.
- Námsmaður verður að fylgjast með því að LÍN hafi réttar upplýsingar um m.a. tekjur hans, fjölskylduhagi og aðrar aðstæður sem geta haft áhrif á lánveitingu og tilkynna sjóðnum eins fljótt og auðið er um breytingar sem kunna að skipta máli varðandi afgreiðslu lána.
- Ef skipt er um nám eða skóla á námsárinu ber námsmanni að tilkynna það til sjóðsins.
- Skila skal öllum umbeðnum upplýsingum vegna lánsumsóknar innan tilskilins tímafrests.
- Þegar námsmaður undirritar umsókn um námslán veitir hann um leið lánasjóðnum heimild til að kanna skattframtöl hans.
- LÍN fær námsárangur umsækjenda frá öllum skólum á Íslandi, en allir námsmenn erlendis verða sjálfir að sjá um að námsárangurinn berist til sjóðsins.
- Breyttan bankareikning verður að tilkynna með samþykki þess banka sem eldri reikningur er hjá.
- Ef námsmaður veitir sjóðnum vísvitandi rangar upplýsingar falla námslán til hans niður og heimilt er að gjaldfella lán sem þegar hafa verið veitt.
Á Mínu svæði er hægt að fylgjast með stöðu umsóknar, afgreiðslu láns, hvaða gögn vantar og breyta upplýsingum.