Main Content

Greinagerð vegna sterkra tengsla við Ísland

Sterk tengsl íslensks ríkisborgara við Ísland, sbr. 3. mgr. 3. gr. reglugerðar nr. 478/2011

Ekki er unnt að telja upp með tæmandi hætti  þau atriði sem stjórn sjóðsins lítur til við mat á því hvort skilyrði 3. mgr. 3. gr. reglugerðar nr. 478/2011 um sterk tengsl íslensks ríkisborgara við Ísland séu uppfyllt. Hver umsókn er skoðuð og metin sérstaklega.

Meðal þátta sem stjórn sjóðsins lítur til er hvort umsækjandi hyggst flytja til landsins til að stunda það nám sem sótt er um námslán vegna og hvort aðstæður umsækjanda bendi til þess að umsækjandi muni hafa búsetu hér á landi að námi loknu. Þá er litið til ástæðna þess að umsækjandi uppfyllir ekki skilyrði gr. 1.1. í úthlutunarreglum LÍN og er til að mynda sérstaklega tekið tillit til þess ef umsækjandi hefur þurft sökum ákvæða laga eða reglugerða að flytja lögheimili sitt erlendis þrátt fyrir að um tímabundna dvöl hafi verið að ræða t.d. vegna náms.  Stjórn sjóðsins lítur einnig til þess að hve miklu leyti tengsl umsækjanda við Ísland hafa rofnað á meðan á dvöl hans erlendis hefur staðið og er þá sérstaklega litið til þess hvernig skattskilum umsækjanda og búsetu maka, einstaklinga sem eru á framfæri  umsækjanda og/eða einstaklinga sem umsækjandi er á framfæri hjá, hefur verið háttað. Ýmsar skuldbindingar umsækjanda og maka umsækjanda, til að mynda ráðningarsamningar, húsnæðislán, lengri leigusamningar um íbúðarhúsnæði, framfærsluskylda vegna barna og fleira þess háttar geta einnig gefið vísbendingu um tengsl umsækjanda við Ísland og eftir atvikum tengsl við annað land.  Einnig er til þess litið hvort umsækjandi hafi öðlast rétt til töku námslána eða rétt til að þiggja styrki vegna náms frá stjórnvöldum annars lands en Íslands.

Stjórn sjóðsins bendir sérstaklega á að mat á því hvort skilyrði 3. mgr. 3. gr. reglugerðar nr. 478/2011 um sterk tengsl íslensks ríkisborgara við Ísland sé uppfyllt er atviks- og aðstæðubundið og er stjórninni því nauðsynlegt að hafa undir höndum sem ítarlegastar upplýsingar um aðstæður umsækjanda við framkvæmd matsins. Stjórn sjóðsins óskar því eftir því að umsækjandi skili sjóðnum greinargerð um þau framangreindra atriða sem umsækjandi telur varpa sem skýrustu ljósi á tengsl hans við Ísland. Mælst er til þess að eftirfarandi gögn séu látin fylgja greinargerðinni eftir því sem við á:

  1. Staðfestar upplýsingar um nám sem umsækjandi og maki umsækjanda hafa stundað erlendis.
  2. Staðfestar upplýsingar um atvinnu umsækjanda og maka umsækjanda.
  3. Leigusamning eða staðfestingu á eignarhaldi á núverandi íbúðarhúsnæði.
  4. Leigusamning eða staðfestingu á eignarhaldi á íbúðarhúsnæði á íslandi.
  5. Skattframtöl  á meðan á dvöl erlendis stóð.
  6. Staðfestingu á búsetu maka, einstaklinga sem eru á framfæri  umsækjanda og/eða einstaklinga sem umsækjandi er á framfæri hjá.
  7. Þá getur það stutt umsókn ef fyrir liggur staðfesting þar til bærra stjórnvalda á því að umsækjandi eigi ekki rétt til töku námslána eða rétt til að þiggja styrki vegna náms í þeim löndum sem umsækjandi hefur helst dvalið síðustu ár.

Greinargerð umsækjanda og öll fylgiskjöl hennar þurfa að berast sjóðnum innan tveggja mánaða frá dagsetningu þessa bréfs, að öðrum kosti er litið svo á að umsækjandi sé fallin(n) frá umsókn sinni.

Námsmenn

Jöfnunarstyrkur

Greiðendur

Ábyrgðarmenn

Um LÍN