Hlutverk LÍN
Hlutverk Lánasjóðs íslenskra námsmanna er að tryggja þeim sem falla undir lögin um sjóðinn tækifæri til náms án tillits til efnahags
Sjóðurinn veitir lán til framhaldsnáms við skóla sem gera sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og gerðar eru til háskólanáms hérlendis.
Lánasjóðnum er einnig heimilt að veita öðrum námsmönnum námslán enda stundi þeir lánshæft sérnám. Stjórn sjóðsins setur nánari reglur um til hvaða sérnáms skuli lánað.
Sjóðurinn sér einnig um veitingu jöfnunarstyrkja til nemenda á framhaldsskólastigi eftir þeim reglum sem um þá gilda.
Starfsemin er fjármögnuð með endurgreiðslum námslána, ríkisframlagi og lánsfé.
Sjóðurinn leitast við að þjónusta viðskiptavini sína sem best með Mínu svæði og upplýsingagjöf á vefsvæði sjóðsins, lin.is.
Jafnframt veita starfsmenn þjónustu í síma og með viðtölum virka daga milli kl. 9 og 16.