| Dags: 25.02.10 |
| Efni: |
Skólagjaldalán fyrir MSc. nám |
| Sendandi: |
B.G.
|
| Erindi: |
Gildir það sama um skólagjaldalán fyrir MSc. nám (erlendis) og BSc. nám, þ.e.a.s. þarf að ljúka 1.önn til að fá skólagjaldalánið greitt eða er hægt að fá það áður en önnin byrjar, ef staðfesting um skólavist liggur fyrir? Hvernig gengur þetta fyrir sig ef um 1.árs MSc. nám (erlendis) er að ræða? |
| Svar: |
Það er aðeins á fyrstu önn í námi sem námsmenn þurfa að bíða þar til önninni er lokið til að fá skólagjaldalánið greitt. Annars er hægt að sækja um að fá skólagjaldalán afgreitt fyrirfram fyrir hverja önn. Námsmaður sem er að hefja mastersnám telst ekki vera fyrsta árs nemi þar sem gert er ráð fyrir að hann hafi áður lokið lánshæfu námi.
|
| |