| Dags: 11.08.10 |
| Efni: |
Skólagjaldalán á fyrstu önn í námi |
| Erindi: |
Skólagjaldalán
Hvernig virkar þetta með skólagjaldalánin? nú veit ég að ég fæ ekki skólagjaldalán frá ykkur greidd fyrr en eftir önnina (þetta er mín fyrsta önn í frumgreinadeildinni).
En ég þarf að borga skólagjöldin fyrirfram. Virkar þetta eins og með námslánin? þ.e fæ get ég farið með staðfestingu frá ykkur í bankann minn sem lánsloforð og fengið hjá þeim tímabundna heimild? |
| Svar: |
Já, skólagjaldalán fyrir fyrstu önn í lánshæfu námi eru greidd út eftir á.
Upphæð skólagjalda kemur fram á lánsáætlun sem hægt er að fara með í bankann og fá fyrirgreiðslu út á væntanlegt lán þar til útborgun framfærslulána og skólagjaldalána fer fram eftir önnina.
Eftir fyrstu önn eru skólagjaldalánin greidd út í upphafi hverrar annar.
|
| |