Main Content

Skoða erindi


Dags:  25.03.11
Efni: Skólagjöld í meistaranámi á Bifröst
Erindi: Góðan dag Get ég sótt um skólagjaldalán vegna 24 eininga í meistaranámi á Bifröst á vorönnina 2011? Ég hef verið í vinnu undanfarið ár, hefur það áhrif á skólagjaldalán?
Svar: Ef þetta meistaranám er skipulagt sem fullt nám ættir þú að geta sótt um skólagjaldalán. Tekjur á árinu 2010 geta haft áhrif til lækkunar á námslánin, bæði framfærslulán og skólagjaldalán. Umsóknarfrestur um lán á vorönn 2011 er til 1. maí nk.
 

Námsmenn

Jöfnunarstyrkur

Greiðendur

Ábyrgðarmenn

Um LÍN