Main Content

Skoða erindi


Dags:  25.07.12
Efni: Ef maður þarf bara að taka lán fyrir fyrstu árin
Erindi: Ef maður þarf bara að taka lán fyrir fyrstu tvö árin sem maður er í námi, heldur síðan áfram í námi, klára síðasta árið í BA og tekur master en hættir að taka lán, þá eru liðin þrjú ár síðan maður hætti að taka lán. Mun maður þá þurfa að borga af lánunum á meðan maður er í námi? Eða getur maður sótt um að fá að klára námið sitt algjörlega, fengið síðan 2 ár til að vinna upp og mega svo borga lánið?
Svar: Ef þú verður óslitið í fullu lánshæfu námi án þess að taka lán getur þú sótt um frest á námslokum á meðan þú ert í námi. Námslok verða skráð þegar þú hættir í fullu lánshæfu námi og fyrsti gjalddagi verður þá tveimur árum seinna.
 

Námsmenn

Jöfnunarstyrkur

Greiðendur

Ábyrgðarmenn

Um LÍN