Reglugerð um starfsreglur málskotsnefndar
1. gr.
Málskotsnefnd gefur álit um hvort úrskurðir stjórnar Lánasjóðs ísl. námsmanna séu í samræmi við ákvæði laga, reglugerða og reglna um sjóðinn sem staðfestar hafa verið af menntamálaráðherra.2. gr.
Málskotsnefnd getur staðfest, breytt eða fellt úr gildi ákvarðanir stjórnar sjóðsins. Álit nefndarinnar skal vera skriflegt og þar skal getið helstu gagna sem liggja til grundvallar niðurstöðu. Niðurstöðu skal fylgja stuttur rökstuðningur. Álit nefndarinnar er endanlegt á stjórnsýslustigi. Afl atkvæða ræður niðurstöðu nefndarinnar.3. gr.
Beiðni um álit nefndarinnar skal vera skrifleg og rituð á eyðublað sem nefndin lætur í té.4. gr.
Málskotsnefnd skal halda málaskrá og gerðabók. Nefndin skal árlega senda menntamálaráðherra skýrslu um starfsemi sína á liðnu almanaksári.5. gr.
6. gr.
7. gr.
Um málsmeðferð hjá málskotsnefndinni fer að öðru leyti skv. stjórnsýslulögum.8. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er skv. heimild í 5. gr. a., sbr. 16. gr. laga nr. 21/1992, sbr. lög nr. 67/1997, öðlast þegar gildi.Menntamálaráðuneytinu 2. febrúar 1998.





