Starfsemi sjóðsins
Lánasjóður íslenskra námsmanna hefur aðsetur í Borgartúni 21, 105 Reykjavík, Höfðaborg. Skrifstofan er opin alla virka daga frá kl. 9:00 til 16:00.
Símanúmerið er 560 4000 og bréfasími er 560 4090. Skiptiborðið er opið frá kl. 9:00 til 16:00.
Starfsmenn veita upplýsingar og ráðgjöf í síma og með viðtölum alla virka daga á meðan skrifstofan er opin.
Fyrirspurnir er einnig hægt að senda í tölvupósti á netfangið lin@lin.is.
Fyrirspurnir almenns eðlis sem ekki varða persónuleg málefni viðskiptavina er hægt að senda inn á vefsvæðinu "Sent og svarað". Fyrirspurnirnar og svörin eru síðan birt á svæðinu og er þar hægt að sjá fyrirspurnir um hin ýmsu málefni er varða LÍN og svör við þeim.
Hlutverk sjóðsins
Hlutverk Lánasjóðins er að tryggja þeim sem falla undir lögin um sjóðinn tækifæri til náms án tillits til efnahags. Sjóðurinn veitir lán til framhaldsnáms við skóla sem gera sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og gerðar eru til háskólanáms hérlendis. Lánasjóðnum er einnig heimilt að veita öðrum námsmönnum námslán enda stundi þeir lánshæft sérnám. Stjórn sjóðsins setur nánari reglur um til hvaða sérnáms skuli lánað.
Sjóðurinn sér einnig um veitingu jöfnunarstyrkja til nemenda á framhaldsskólastigi eftir þeim reglum sem um þá gilda, sjá "Reglugerð um námsstyrki" undir "Jöfnunarstyrkur".
Stjórn sjóðsins
Aðalmenn í stjórn eru:
Haraldur Guðni Eiðsson, formaður
Auður Lilja Erlingsdóttir, varaformaður
Finnur Friðriksson, fulltrúi menntamálaráðuneytis
Eyja Margrét Brynjarsdóttir, fulltrúi fjármálaráðuneytis
Valur Þráinsson, fulltrúi SÍNE
Sigurður Kári Árnason, fulltrúi SHÍ
Rakel Lind Hauksdóttir, fulltrúi BÍSN
Sindri Snær Einarsson, fulltrúi SÍF





